Tíunda konan finnst látin á aðeins tveimur mánuðum

Lögreglan í Suður-Afríku fann í morgun lík konu austur af Jóhannesarborg, það tíunda á aðeins tveimur mánuðum. Örvænting og skelfing borgarbúa fer vaxandi. Lögregla vinnur nú að því af kappi að skoða hvort líkfundirnir tíu tengist og hvort raðmorðingi leiki lausum hala í Jóhannesarborg og nágrenni. Líkið sem fannst í morgun var í Tembisa, bæ austur af borginni, og heldur lögregla spilunum þétt að sér. Aðeins sé hægt að staðfesta að lík hafi fundist, ekki hvernig andlát konunnar bar að. Sjónvarpsfréttastöðvar í Suður-Afríku hafa eftir heimildum að konan hafi verið rifin úr fötunum að hluta og skilin eftir í kirkjugarði. Flestar konurnar sem fundist hafa látnar síðustu vikur hafa fundist naktar, ýmist að hluta eða að öllu leyti. Öll fórnarlömbin voru á þrítugs- eða fertugsaldri og einhverjar
Tíunda konan finnst látin á aðeins tveimur mánuðum

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd