Nýtt náttúru- og innviðagjald á ferðamenn sem ætla Gullna hringinn – það er að segja á Þingvelli, Gullfoss og Geysi – verður lagt á frá og með 1. maí á næsta áriNýja gjaldið leggst aðeins á þá sem ekki eru með skattalega heimilisfesti hér á landi og eru 18 ára eða eldri.Frá 1. júní til októberloka verður gjaldið 4.500 krónur en annars 3.000 krónur. Með þessu á að afla ríkissjóði tekna upp á um 6,7 milljarða króna á ári og gert er ráð fyrir að tekjurnar verði 5 milljarðar á næsta ári.Um leið mun Þjóðgarðurinn á Þingvöllum hætta að rukka fyrir bílastæði en þar hefur kostað um 1.000 krónur að leggja einkabílum – í staðinn á þjóðgarðurinn að fá þá upphæð sem hann hefur rukkað fyrir bílastæði úr ríkissjóði.Þetta kemur fram í drögum að frumvarpi atvinnuvegaráðherra sem var birt í samráðsgátt í v