„Ég er að sjá núna nokkuð sem ég hef ekki séð áður. Börn sem eru kynsegin eða trans reyna í auknum mæli að falla inn í þetta venjulega unglingasamfélag,“ segir Hrefna Þórarinsdóttir, forstöðukona Hinsegin félagsmiðstöðvarinnar. BÖRNIN DULBÚA SIG Einu sinni í viku er opnun í félagsmiðstöðinni og þá koma börn alls staðar af landinu til að hittast í öryggi, þar sem þeim líður vel og eru meðal jafningja.„Við höfum séð að þau koma kannski í strætó til okkar, í venjulegum unglingafatnaði, eru svolítið að dulbúa sig, en koma með sjálfið sitt í poka, fötin sem þau langar að vera í. Svo fara þau inn á klósett og skipta um föt. Svo í lok kvöldsins klæða þau sig aftur úr sjálfinu og fara í hliðarsjálfið. Ég sá þetta ekki áður og þetta er átakanlegt í hvert einasta skipti því þau eiga ekki að þurfa