Tæp þrjú ár liðu frá því Rannveig Tenchi Ernudóttir og fjölskylda hennar keyptu hús í Stykkishólmi þar til þau fengu loks afsal fyrir eigninni. Húsið var sagt í góðu ástandi og vel við haldið en fljótlega komu, að sögn Rannveigar, í ljós leki, mygla, skemmdir á hitakerfi og vandamál með frárennsli. Fjölskyldan eyddi sparnaði sínum í framkvæmdir og lögfræðikostnað en Rannveig segir reynsluna hafa sýnt hversu erfitt getur verið fyrir kaupendur að sækja rétt sinn.