Offita barna eykst og eykst

„Kraftmiklir krakkar” er verkefni á vegum Heilbrigðisstofnunar Suðurlands þar sem offita barna er aðalatriðið en tilgangur verkefnisins er að bregðast við vaxandi tíðni offitu barna á Suðurlandi. Boðin er fagleg meðferð og stuðningur innan heilsugæslunnar til að bregðast við vandamálinu. Orsakir offitu geta verið flókið samspil umhverfis, sálfélagslegra og erfðafræðilegra þátta, sem hafa áhrif á barnið og fjölskyldu þess. Þverfaglegt teymi er á bak við verkefnið hjá heilsugæslunni.„Ástæðan fyrir því að við fórum af stað með þetta verkefni var að við sáum að algengi offitu á Suðurlandi var að aukast mjög mikið,” segir Bjarnheiður Böðvarsdóttir, hjúkrunarfræðingur og umsjónarmaður verkefnisins „Kraftmiklir krakkar”.Bjarnheiður segir að offita hafi mjög mikil áhrif á heilsu barna, en hvernig?
Offita barna eykst og eykst

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd