Bandaríkjaforseti hafnar tillögu Írana um opnun Hormússunds

Utanríkisráðherra Írans, Abbas Araghchi, segir að Íranar hafi boðið Bandaríkjamönnum tillögu sem gæti leitt til þess að Hormússund yrði opnað á ný innan viku. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur hafnað tillögunni.Araghchi sagði í viðtali við fjölmiðla í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York að tillagan hefði verið kynnt Bandaríkjamönnum með milligöngu Katara. Tillagan er sjö daga áætlun og ef eftir henni verði farið verði hægt að opna Hormússund eftir viku.Araghchi sagði að boltinn væri hjá Bandaríkjamönnum en Íranar láti ekki þvinga sig og sætti sig ekki við hótanir eða þvinganir. Íran ætli ekki að gefa frá sér fullveldi sitt undir þrýstingi. BIRTI MYND AF TRUMP-SUNDI Á SAMFÉLAGSMIÐLI SÍNUM The Wall Street Journal hefur eftir bandarískum embættismönnum að Bandaríkjaforseti hafi h
Bandaríkjaforseti hafnar tillögu Írana um opnun Hormússunds

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd