Óvíst hverju fundur Trumps og Xi muni skila:„Umgjörðin virðist meiri en innihaldið“

„Umgjörðin virðist vera aðeins meiri en innihaldið. En það þýðir ekki að þessi fundur hafi verið tilgangslaus. Það verður auðvitað hlé á þessu tollastríði í bili og þetta eru tvö stærstu hagkerfi heims. Og það er okkur öllum til góðs.“Þetta segir Guðbjörg Ríkey Thoroddsen Hauksdóttir, sérfræðingur hjá Alþjóðamálastofnun við Háskóla Íslands.Guðbjörg segir að augljóslega hafi öllu verið tjaldað til við móttöku Xi Jinping, forseta Kína til Bandaríkjanna.„En þetta segir okkur kannski aðeins meira um ríkiserindreksturinn heldur en valdabaráttuna. Hún er ennþá til staðar,“ segir Guðbjörg í viðtali í kvöldfréttum sjónvarps.„En það er athyglisvert að Trump hafi tekið á móti Xi á flugvellinum, þegar vaninn er að Bandaríkjaforseti taki á móti þjóðarleiðtogum í Hvíta húsinu. Svo er auðvitað stærsti v
Óvíst hverju fundur Trumps og Xi muni skila:„Umgjörðin virðist meiri en innihaldið“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd