Umboðsmaður barna segir stöðuna á biðlistum barna víða hafa versnað. Þúsundir bíði mánuðum eða jafnvel árum saman eftir greiningu, meðferð og þjónustu. Meðalbiðtími hjá Geðheilsumiðstöð barna eftir einhverfugreiningu er kominn yfir þrjú ár. 870 BÍÐA EFTIR ATHUGUN VEGNA GRUNS UM EINHVERFU Um 2700 börn bíða eftir þjónustu hjá Geðheilsumiðstöð barna og hefur þeim fjölgað um rúmlega 250 á síðustu sex mánuðum. Stór hluti þeirra, eða tæplega 2600 börn, hefur beðið lengur en í þrjá mánuði.Þetta kemur fram í nýrri tölfræði Umboðsmanns barna um bið barna eftir þjónustu.Alls bíða 1838 börn eftir athugun vegna gruns um ADHD, með eða án einhverfu, og er meðalbiðtíminn 30,7 mánuðir, eða rúmlega tvö og hálft ár.Lengur þarf að bíða eftir athugun vegna gruns um einhverfu. Meðalbiðtíminn þar er 38,3 mán