Borgaryfirvöld í Tókýó, höfuðborg Japans, hafa til skoðunar að grípa til hertra aðgerða til að halda borginni hreinni. Borgarstjórinn Yuriko Koike tilkynnti á dögunum að í samstarfi við sérfræðinga eigi að grípa til aðgerða, svo sem að fá samþykkta reglugerð um sektir á hendur þeim sem henda rusli á götuna, að því er japanski fjölmiðillinn The Japan Times greinir frá.Yfir 500 milljónir manna heimsóttu Tókýó i fyrra, þar á meðal voru tæpar 29 milljónir erlendra ferðamanna. Þeir hafa aldrei verið fleiri. Borgin hefur lengi þótt ein sú snyrtilegasta í heimi en rusl á götum vinsælustu hverfanna hefur aukið mikið síðustu ár.Í Tókýó hafa hverfin ákveðin völd og í Shibuya samþykktu stjórnvöld í júní að leggja 2.000 jena sekt á fólk sem verður uppvíst að því að henda rusli á götuna. Það jafngildir