Ný sería af The Four Seasons tekin upp á Íslandi: „Reykjavík og Ísland fá gríðarlega landkynningu“

Þriðja sería af sjónvarpsþáttunum The Four Seasons er í tökum hér á landi. Framkvæmdastjóri True North segir yfir 100 manns á vegum fyrirtækisins koma að verkefninu. Níu íslenskir leikarar fara með hlutverk í þáttunum. COLMAN DOMINGO SPÓKAÐI SIG Í MIÐBORGINNI Samkvæmt heimildum fréttastofu voru tökur í verslun Krónunnar á höfuðborgarsvæðinu í gær. Tökulið hefur einnig verið í miðborg Reykjavíkur.Þættirnir hafa notið mikilla vinsælda og verið vel tekið af gagnrýnendum. Þeir eru úr smiðju Tinu Fey, sem fer einnig með eitt aðalhlutverkið.Þættirnir fjalla um vinahjón sem fara reglulega saman í ferðalög og hvernig líf þeirra tekur breytingum í gegnum þau. Auk Fay fara Domingo Colman, Steve Carrell, Will Forte, Erika Henningsen og Marco Calvani með aðalhlutverk í þáttunum.Colman Domingo, einn
Ný sería af The Four Seasons tekin upp á Íslandi: „Reykjavík og Ísland fá gríðarlega landkynningu“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd