Kúhegri sást í Vestmannaeyjum í dag. Hann er sá fyrsti sinnar tegundar sem vitað er til að hafi sést þar.Tígull greindi fyrst frá.„Þeir eru fremur sjaldgæfir flækingar, eða voru það,“ segir Yann Kolbeinsson, líffræðingur hjá Náttúrustofu Norðausturlands.Áður voru kúhegrar bundnir við Miðjarðarhafssvæðið. Með hlýnandi loftslagi hefur útbreiðsla aukist í Norður- og Vestur-Evrópu og því algengara að þeir láti sjá sig hérlendis.Myndband af fuglinum tók Addi London fyrir Tígul:Vestmannaeyingar sáu til kúhegra, sjaldgæfs flækings, í dag. Líffræðingur telur að lægð gærdagsins hafi valdið komu hans til landsins.Komur kúhegra eru háðar lægðagangi á vorin og haustin. Þeir hafa þó ekki látið sjá sig, svo fólk viti, það sem af er ári.Yann segir greinilegt að lægðin sem gekk yfir í gær hafi blásið fugl