Bandarísk stjórnvöld hafa stungið upp á því að sendinefndir Rússlands og Úkraínu ræði saman í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á næstunni. Þetta tilkynnti Zelenský Úkraínuforseti í dag. Úkraínsk stjórnvöld væru að bíða eftir dagsetningu.Verið er að reyna að blása lífi í friðarviðræður sem hafa legið niðri stóran hluta ársins. Zelenský ræddi við Trump Bandaríkjaforseta á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í vikunni.Úkraínsk stjórnvöld ætla á næstu dögum að ræða betur við bandamenn sína í Evrópu og bandarísk stjórnvöld ræða við Rússa, sagði Zelenský. Stjórnvöld í Rússlandi staðfestu í dag að mögulegt væri að viðræðurnar yrðu á næstunni.Volodymyr Zelensky forseti Úkraínu og Donald Trump forseti Bandaríkjanna.AP / Julia Demaree Nikhinson