Það voru risafréttir sem bárust í dag. Óháð nefnd hefur fundið Manchester City sekt í nánast öllum ákæruliðum í stóru máli sem var höfðað gegn félaginu og meintum brotum þeirra á fjárhagsreglum ensku úrvalsdeildarinnar. Nú tekur við spurningin sem allir bíða eftir svari við: Hvernig verður Manchester City refsað? Hér er farið yfir allar helstu refsingarnar sem koma til greina og hvað þær myndu þýða fyrir City og ensku úrvalsdeildina.