Mikil olía lak á Lindarbraut og Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Vegfarendur voru varaði við hálku vegna þessa.María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og samskiptasviðs Seltjarnarnesbæjar, segir ekki liggja fyrir nákvæmlega hvað olli lekanum. „Það virðist hafa lekið úr einhverjum bíl,“ segir hún.María leiðir að því líkum að bíllinn hafi verið stór því olían dreifðist víða um stofnleiðina á Seltjarnarnesi.Lekinn náði út úr sveitarfélaginu og virðist hafa haldið áfram í áttina að Granda.Að sögn Unnars Más Ástþórssonar aðalvarðstjóra hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu virðist lekinn hafa verið minniháttar og búið er að hreinsa olíuna upp.