Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu

Vegurinn í Árneshrepp er lokaður vegna stórrar skriðu sem féll í Kaldbaksvík. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu á Facebook segir að vegurinn sé lokaður og verði í besta falli jeppafær eftir að Vegagerðin opnar hann.„Það er áfram mikil rigning í veðurkortunum svo það er ekki öruggt ferðaveður inn og út úr sveitinni. Fylgist vel með á vef Vegagerðarinnar ef þið hyggið á ferðalög,“ segir í tilkynningunni.Árneshreppur / Marta
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd