Elín Ósk Óskarsdóttir á glæstan feril að baki í óperuheiminum. Hún fór ung til Ítalíu í söngnám og var boðið aðalhlutverkið í Toscu eftir Puccini aðeins 25 ára gömul.„Þetta var þvílík upphefð og þvílíkur heiður,“ segir hún þegar hún rifjar upp stóra tækifærið í Mannlega þættinum. KOMST EKKI UPP Á HÁA C-IÐ Ferillinn fór síðan á flug og starfaði hún sem söngkona og stofnaði kór sem hún stýrði. Árið 2013, þegar Elín var 52 ára, fór heilsan að bresta og hún þurfti að hætta með kórinn sinn.„Ég fór í miklar rannsóknir í nokkur ár og var dæmd sem vefjagigtarsjúklingur. Svo missti ég röddina, ég komst ekki nema rúmlega upp einstrikað C og mitt háa C? Gleymdu því, það var ekki lengur til.“Elín lýsir því að hún hafi versnað ár frá ári, fitnað mikið, var komin með mikla heilaþoku og gat hvorki hlu