Utanríkisráðherra segir afstöðu Íslands til hörmunganna á Gaza, mannúðaraðstoðar og tveggja ríkja lausnarinnar skýra. Stuðningur við Palestínu sé mikill þrátt fyrir að fulltrúi fastanefndar Íslands í mannréttindamálum hafi setið undir ræðu forsætisráðherra Ísraels á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. HEYRÐI AÐ RÆÐA NETANJAHÚ HEFÐI VERIÐ ÓHUGNALEG „Ég valdi að vera á sama tíma á ráðherrafundi til stuðnings UNWRA, sem er Palestínuflóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna, en það hefur verið þannig, eins og Espen kollegi minn í Noregi hefur dregið fram, að Norðurlöndin hafa verið með fulltrúa í sætinu og mannað það til þess að hlusta á ræður í ráðherravikunni. Með þessu erum við náttúrulega ekki með neinum hætti að taka undir eitt eða neitt.“Þorgerður segist hafa heyrt að ræða Benjamíns N