Forsvarsmenn Goncourt-verðlaunanna, virtustu bókmenntaverðlauna Frakklands, greindu frá því í dag að metsöluskáldsaga kanadísk-haítíska rithöfundarins Thelyson Orelien hefði verið tekin af lista yfir bækur sem koma til greina til verðlaunanna. Ákvörðunin kemur í kjölfar fullyrðinga á netinu um að bókin hafi verið skrifuð með gervigreind. Ákvörðunin sé tekin „af vilja til að varðveita heilindi Goncourt-verðlaunanna og akademíunnar sjálfrar, en meginhlutverk hennar...