Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík

Húsráðandi var handtekinn og færður til yfirheyrslu. Honum hefur verið sleppt og telst málið upplýst. Þetta er þriðja kannabisræktunin sem lögreglan á Vestfjörðum hefur stöðvað í umdæminu það sem af er þessu ári. PLÖNTURNAR Í FULLRI STÆRÐ Lögreglan á Vestfjörðum framkvæmdi húsleit í heimahúsi í Bolungarvík á miðvikudag vegna gruns um ræktun kannabisplantna. Við húsleit fundust tugir kannabisplantna sem virtust komnar í fulla stærð.Þetta kemur fram í Facebook færslu lögreglunnar á Vestfjörðum. Þar kemur einnig fram að miðað við magnið megi ætla að afurð ræktunarinnar hafi átt að fara í dreifingu og sölu.Lögregla lagði hald á plönturnar ásamt búnaði sem tilheyrði ræktuninni.„Einn aðili, húsráðandi, var handtekinn og færður til yfirheyrslu í tengslum við rannsókn málsins. Manninum var slep
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd