Þrír þeirra sem sátu í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti hafa verið látnir lausir.Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglu.Tveir verða í haldi til 2. október og einn til 28. september.„Rannsókn málsins miðar ágætlega, en ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu,“ segir í tilkynningunni.Fréttastofa greindi frá því á þriðjudaginn að lögregla hefði ráðist í samhæfðar aðgerðir og handtekið 17 manns. Húsleit var gerð víða og hald lagt á peninga og fíkniefni.Á meðal þeirra handteknu eru þekktir brotamenn. Þá var starfsmaður bílasölunnar BL einnig handtekinn. Forstjóri fyrirtækisins hefur lýst því yfir að fyrirtækið eigi enga aðkomu að málinu.