39 missa vinnuna hjá LS Retail, þar af 17 á Íslandi

Hugbúnaðarfyrirtækið LS Retail hefur sagt upp 39 starfsmönnum vegna skipulagsbreytinga. Af starfsmönnunum sem sagt var upp starfa 17 á Íslandi.LS Retail hefur höfuðstöðvar á Íslandi en starfsstöðvar í Bandaríkjunum, Portúgal, Sameinuðu arabísku furstadæmunum og Malasíu.Í svari við fyrirspurn fréttastofu segir að í skipulagsbreytingunum hafi stöðugildum verið fækkað um 39 sem jafngildir 10% af heildarstarfsmannafjölda fyrirtækisins. Eftir breytingarnar eru starfsmenn fyrirtækisins 249, þar af 122 á Íslandi.Endurskipulagninguna megi að hluta rekja til verulegs samdráttar í opinberum stuðningi við rannsóknir og þróun hugbúnaðar á Íslandi.„LS Retail hefur um árabil notið rannsóknar- og þróunarstyrkja sem veittir eru í gegnum Rannís. Sá stuðningur hefur nú verið skertur verulega með afturvirkum
39 missa vinnuna hjá LS Retail, þar af 17 á Íslandi

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd