Tækni gegnir sífellt stærra hlutverki á vinnustöðum. Hún er m.a. nýtt til að halda utan um laun, vinnutíma, vaktir og verkefni og hefur þannig bein áhrif á daglegt starf og kjör fólks. Með aukinni sjálfvirkni og gervigreind hefur hlutverk tækninnar enn meiri áhrif á stjórnun fyrirtækja. Tæknin er mikilvægt verkfæri en hún er eftir sem áður bara það: verkfæri.