„Í deigið nota ég mjólkina frá Örnu sem er nú komin í glænýjar og einstaklega fallegar umbúðir. Samhliða nýja útlitinu hafa mjólkurtegundirnar fengið ný heiti. Í stað nýmjólkur og léttmjólkur er nú einfaldlega Blámjólk með 4% fitu og Gul mjólk með 1,5% fitu. Báðar eru án laktósa og framleiddar í Bolungarvík. Umbúðirnar eru litríkar og skýrar svo það er auðvelt að þekkja mjólkina í kælinum.“