„Að mínu mati var þetta brot á EES-samningnum um frjálsan flutning launþega á milli EES-ríkja,“ segir Anna Bryndís Einarsdóttir taugalæknir.Hún ræðir um sögulegan dóm sem féll í Hæstarétti Íslands á miðvikudaginn þar sem henni voru dæmdar skaðabætur frá íslenska ríkinu vegna þess að hún fékk skertar greiðslur úr fæðingarorlofssjóði þegar hún flutti til Íslands frá Danmörku árið 2019.Anna Bryndís hefði átt að fá hærri fæðingarorlofssjóðsgreiðslur í Danmörku þar sem hún var í sérnámi í læknisfræði og hafði unnið sem læknir. Þegar hún flutti heim til Íslands vildi Fæðingarorlofssjóður ekki greiða henni þessar tekjutengdu greiðslur sem byggðu á vinnu hennar í Danmörku heldur einungis lágmarksgreiðslur. Greiðslurnar sem hún fékk byggðu á því að hún hefði verið tekjulaus og var þetta vegna þess