Í viðtali á Vísi í byrjun mánaðarins benti Guðrún Ragnarsdóttir, ráðgjafi hjá Strategíu, á staðreynd sem íslensk fyrirtæki verða að taka alvarlega. Gervigreindin er orðin milliliður milli neytenda og verslunar. Hún les vöruupplýsingar, ber þær saman og mælir með sumum vörum umfram aðrar. Varan sem gervigreindin skilur ekki kemst einfaldlega ekki á blað.