Sérsveit ríkislögreglustjóra var kölluð til aðstoðar við Hagkaup á Eiðistorgi á Seltjarnarnesi síðdegis í gær vegna manns með hníf og beitti hún piparúða og rafbyssu til að yfirbuga hann. Samkvæmt heimildum fréttastofu er maðurinn íslenskur og á fimmtugsaldri. Sjónarvottar segja að hann hafi ekki tekið hnífinn úr umbúðum nema að hluta.Starfsfólks Hagkaups varð ekki vart við það þegar maðurinn var yfirbugaður af lögreglu við verslunina í gær. Sigurður Reynaldsson, framkvæmdastjóri Hagkaups, segir að upplýsingar úr myndavélakerfi verslunarinnar sýni að maðurinn hafi farið inn í búðina, keypt þar brauðhníf ásamt öðru og síðan gengið út. Starfsfólk varð ekki vart við neitt óeðlilegt að sögn Sigurðar, sem heyrði fyrst af atburðinum í gegnum fréttir RÚV. Þar sem ekkert gerðist inni í búðinni var