Undanfarið hefur mikið verið rætt um kjaradeilu flugvirkja og Icelandair. Þar sem sambýlismaður minn er flugvirki stendur þessi umræða mér nærri og mig langar því að deila mínu sjónarhorni. Sérstaklega vegna þess að mér finnst umræðan á köflum hafa orðið þannig að deilan snúist fyrst og fremst um „græðgi“ flugvirkja og kröfur þeirra um verulegar launahækkanir.