Ísland hefur sæti landsins ávallt mannað

Fulltrúi fastanefndar Íslands í mannréttindamálum sat í sæti Íslands meðan Netanjahú flutti ræðu sína á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í gær. Sendinefndir fjölda ríkja gengu út undir ræðunni og mikil mótmæli voru í New York vegna veru Netanjahús á þinginu.„Ísland, eins og önnur norræn ríki, hefur sæti landsins ávallt mannað í umræðum í ráðherraviku allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna,“ segir í skriflegu svari utanríkisráðuneytisins til fréttastofu.Í svarinu segir enn fremur að Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra, hafi ekki verið í salnum þegar Netanjahú flutti ræðu sína. Hún hafi verið á viðburði um stuðning við Palestínuflóttamannahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNRWA, sem var á sama tíma. Þorgerður Katrín tók sömuleiðis þátt í ráðherraviðburði um tveggja ríkja lausn fyrr um da
Ísland hefur sæti landsins ávallt mannað

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd