Matvöruverslunin Prís ætlar ekki að frysta verð heldur halda áfram að vera ódýrasta verslunin. Verkalýðshreyfingin hefur þrýst á verslanir að frysta verð til að vinna á verðbólgunni og hefur Krónan gefið út að verð verði fryst á 647 vörum til áramóta.