Ekki hefur verið hægt að leggja fólk inn á Vog þessa vikuna vegna skorts á starfsfólki. Ekki verður heldur hægt að taka inn fólk í næstu viku eins og gert væri við hefðbundnar aðstæður. Reynt verður að taka við nýjum skjólstæðingum á mánudag og föstudag í næstu viku en fjölga þarf læknum til að starfsemin geti orðið í samræmi við markmið og samninga.Uppsagnir og veikindaleyfi heilbrigðisstarfsfólks í þeirri óánægjuöldu sem risið hefur innan sjúkrahússins hafa orðið til þess að mun færri fá meðferð þessa dagana en vera ætti. Fyrr í vikunni voru 25 innritaðir á spítalann en pláss er fyrir 45.Sigurður H. Helgason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands, sagði í vikunni að nýting sjúkrahússins þyrfti að lagast á næstu einni eða tveimur vikum. Alma Möller heilbrigðisráðherra sagði í Kastljósi að stj