Ráðherrar veita ekki fjölmiðlum viðtöl að loknum ríkisstjórnarfundi í dag líkt og venjan er en sú skýring var gefin að ekki gæfist tími til viðtala, meðal annars vegna annarra funda. Ekki er þingfundur í dag og því ljóst að ráðherrar hafa ekki þurft að hlaupa af ríkisstjórnarfundi á þingfund.