Hávær mótmæli hafa brotist út á Spáni eftir að 87 ára gömul kona, sem jafnframt er öryrki, var þvinguð út af heimili sínu í Madrid fyrr í vikunni.Mótmælin hafa dreifst um fleiri borgir Spánar en mál konunnar, sem er einfaldlega þekkt undir skírnarnafni sínu, Maricarmen, hefur dregið athygli að þeirri miklu húsnæðiskrísu sem landið stendur frammi fyrir.Maricarmen hafði búið í sömu íbúð í Retiro-hverfinu í miðbæ Madrid í sjö áratugi. Faðir hennar tók íbúðina á leigu árið 1956 en eftir að foreldrar hennar voru fallnir frá tók Maricarmen við íbúðinni. Þak var á leiguverði íbúðarinnar sem nam 500 evrum, eða 68.600 íslenskum krónum. HÆKKUÐU LEIGUNA UM 430% Árið 2018 keypti fasteignafélagið Urbagestión húsið og tókst þeim að nýta sér lagaglufu til að hækka leiguna í 2.650 evrur, eða 364.000 ís