Ráðherrar veita ekki viðtöl eftir reglulegan ríkisstjórnarfund í dag. Ríkisstjórnin fundar venju samkvæmt á þriðjudögum og föstudögum og eftir flesta fundi býðst fjölmiðlum að taka viðtöl við ráðherrana. Fjölmiðlar þurfa þá að upplýsa aðstoðarmenn um hverja verður rætt við og um hvað. Oft getur reynst erfitt að fá viðtöl við ráðherra á öðrum tímum.Þrír ráðherrar eru fjarverandi á fundinum í dag; Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra er í New York á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna og þá eru Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, ekki á fundinum.Sighvatur Arnmundsson, upplýsingafulltrúi forsætisráðuneytisins, segir að tímaskortur sé ástæða þess að ráðherrar veiti ekki viðtöl. Aðrir fundir séu á dagskrá eftir ríkisst