Stjórn Félags prófessora við ríkisháskóla skorar á Alþingi að falla frá 1.351 milljónar króna aðhaldskröfu á háskóla og rannsóknarstarfsemi. Aðhaldskrafan er átta milljónum krónum hærri en 1.343 milljóna króna fjárveiting sem á að fara í eflingu háskólasamfélagsins.Þetta kemur fram í yfirlýsingu Félags prófessora við ríkisháskóla sem lýsir verulegum áhyggjum af efni fjárlagafrumvarpsins.„Þegar þrengt er að háskólunum hefur það þær afleiðingar að svigrúm til rannsókna minnkar, stöðugildum getur fækkað og rannsóknabúnaður er síður endurnýjaður,“ segir í yfirlýsingunni. „Þetta hefur allt áhrif á getu samfélagsins til að mennta sérfræðinga, byggja upp þekkingu og takast á við áskoranir framtíðarinnar.“Prófessorarnir nefna að auk aðhaldskröfunnar eigi að rýra framlög til helstu rannsóknarsjóða