Það getur stundum verið pínu erfitt að vera grunnskólakennari. Eitt eru allir þeir hattar sem maður þarf að bera á einum degi, þannig að manni líður stundum eins og segir í kvæðinu Löngum var ég læknir minn. Annað er að þurfa að útbúa nær allt námsefni, matskvarða og svo mætti lengi telja. Ég vil þó ekki kvarta undan því, enda er þetta starfsvettvangur sem ég hef valið mér og kann vel við.