Samninganefndir Icelandair og flugvirkja funda í fyrsta sinn eftir verkfall

Fundur Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hófst hjá ríkissáttasemjara klukkan 10. Þetta er fyrsti fundur samninganefndanna síðan samkomulag náðist um að aflýsa verkfalli flugvirkja á miðvikudag, sem stóð í tæpan hálfan sólarhring.Samkvæmt samkomulaginu á að nýta næstu fjórar vikur til markvissra viðræðna samkvæmt viðræðuáætlun ríkissáttasemjara. Ástráður Haraldsson ríkissáttasemjari.RÚV / Ragnar Visage
Samninganefndir Icelandair og flugvirkja funda í fyrsta sinn eftir verkfall

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd