Að Reykjalundi í Mosfellsbæ er starfrækt einstök endurhæfingarmiðstöð sem hefur í áratugi þjónað íslensku þjóðinni. Þangað kemur fólk eftir veikindi, slys og önnur áföll til að byggja upp heilsu sína, færni og sjálfsbjargargetu og ná aftur fótfestu í lífinu. Á hverju ári njóta á annað þúsund manns endurhæfingar á Reykjalundi.