Heilbrigðisráðherra segir ofbeldi gegn börnum samfélagsmein. Skimun fyrir ofbeldi hefst í grunnskólum landsins í október og ný ofbeldismóttaka barna var opnuð í ágúst.Verkefnin eru meðal 25 aðgerða til að bregðast við ofbeldi gegn börnum og meðal barna sem stjórnvöld boðuðu haustið 2024 og kynntu á vordögum 2025.Alma Möller heilbrigðisráðherra segir að skimun fyrir ofbeldi í grunnskólum fari fyrst og fremst fram hjá skólahjúkrunarfræðingum.„Þannig að við erum að nota verkfæri sem er til, samtal heilbrigðisstarfsmanns við börnin í umhverfi sem þau þekkja, í umhverfi þar sem þeim finnst þau vera örugg,“ segir Alma.Verkefnið var prófað í fimm skólum í vor og verður fyrst um sinn skimað meðal barna í 7. og 9. bekk. Alma segir að líklega verði það stækkað og nái til fleiri bekkja síðar.„Þetta p