Fjölskyldur hérlendis eiga 60 milljónir og skulda 15

Heildarskuldir fjölskyldna landsins hafa ekki verið minni sem hlutfall af landsframleiðslu í aldarfjórðung. Þær voru 69,5% af landsframleiðslu í fyrra. Það hlutfall hafði þá ekki farið undir 70% síðan 2002 og ekki verið lægra síðan 2001 þegar skuldir fjölskyldnanna voru 69,3% af landsframleiðslu.Þetta kemur fram í nýjum tölum Hagstofunnar þar sem skuldir og eignir eru metnar.Meðalfjölskyldan átti 60,4 milljónir króna í fyrra þegar verðmæti fasteigna, ökutækja, innstæðna í bönkum og verðbréfa voru lögð saman. Meðalfjölskyldan skuldar 14,7 milljónir.Elsta fólkið á mestar eignir að meðaltali, 111 milljónir, en eignir yngsta aldurshópsins jukust mest.
Fjölskyldur hérlendis eiga 60 milljónir og skulda 15

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd