Þessa dagana er vakin sérstök athygli víða um heim á táknmálum, heyrnarlausum, heyrnarskertum og fólki með samþætta sjón-og heyrnarskerðingu.. Hér heima gefst því gott tilefni til að staldra við og spyrja: Hvernig stendur íslenskt táknmál í raun og veru í dag? Hvað hefur gerst á undanförnum árum og hvert stefnum við?