Fyrsta opinbera heimsókn páfa til Frakklands í 18 ár

Leó páfi heldur til Parísar í dag í fyrstu opinberu heimsókn páfa til Frakklands í 18 ár. Kirkjuklukkur hringja í sjö mínútur í kirkjum landsins þegar Leó páfi lendir í París klukkan átta að íslenskum tíma.Forseti Frakklands, Emmanuel Macron, og eiginkona hans Brigitte taka á móti honum á flugvellinum og þaðan heldur hann í forsetahöllina. Síðdegis verður hann með ræðu um mikilvægi þess að koma reglum yfir gervigreind í höfuðstöðvum Mennta-, vísinda- og menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna, UNESCO.Páfinn heimsækir einnig Kirkju vorrar frúar, Notre Dame-dómkirkjuna, og verður fyrsti páfinn til að heimsækja kirkjuna eftir brunann 2019. Þá verður hann með bænastund fyrir unga kaþólikka á íþróttaleikvangi og aðra fjöldamessu í París. RÆÐIR VIÐ ÞOLENDUR KYNFERÐISOFBELDIS OG MÆLIR FYRIR FRIÐI
Fyrsta opinbera heimsókn páfa til Frakklands í 18 ár

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd