Styrkjakerfi kvikmyndagerðar ætti að endurspegla betur áhugasvið almennings og styðja ætti betur við sjónvarpsþáttagerð. Bagalegt er að framleiðslufyrirtæki þurfi að reka sig fyrir lánsfé þegar lögbundnar endurgreiðslur skila sér ekki á réttum tíma. Þetta er mat Birkis Ágústssonar, framkvæmdastjóri miðla hjá Símanum.