Ísland tók ekki þátt í fjöldaútgöngu fulltrúa á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna þegar Benjamín Netanyahu, forsætisráðherra Ísraels, steig í pontu í New York í dag. Fulltrúi Íslands sat áfram í sæti landsins á meðan tugir annarra fulltrúa yfirgáfu salinn. Þetta staðfestir aðstoðarmaður utanríkisráðherra við Heimildina. Erlendir fjölmiðlar greina frá því að tugir fulltrúa hafi gengið úr salnum þegar Netanyahu hóf ræðu...