Kalla eftir því að fleiri fyrirtæki leggi hönd á plóg

Nú styttist óðum í áttunda október en þá rennur út frestur til að segja upp nú núverandi kjarasamningum á almennum vinnumarkaði. Ásta S. Fjeldsted forstjóri Festi segir þá stöðu sem uppi er í íslensku samfélagi í dag kalla á samtakamátt allra, bæði stjórnvalda, atvinnurekenda og þeirra sem fara fyrir launþegum.Festi ákváðu í dag að frysta verð á um 650 vöruflokkum í Krónunni til að bregðast við ákalli um aðgerðir til að lækka verðbólgu og draga úr kostnaði fyrir heimili landsins. Ásta segir aðgerðirnar til þess gerðar að auka fyrirsjáanleika viðskiptavina og fólksins í landinu og létta á kostnaðarþrýstingi á heimilin.„En þetta er svona hin almenna dagvara sem flestir versla og þetta er allt frá kjúklingabringum og matvælum yfir í klósettpappír og hreinsivörur.“ ÁKALL SENT TIL FYRIRTÆKJA
Kalla eftir því að fleiri fyrirtæki leggi hönd á plóg

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd