Samband Kanada og Bandaríkjanna hefur tekið gríðarlegum breytingum á skömmum tíma. Samþætting og nágrannakærleikur hafa mikið til vikið fyrir tollastríði og gífuryrðum. Bandaríkjaforseti hefur á undanförnum mánuðum talað um að gera Kanada að fimmtugasta og fyrsta ríki Bandaríkjanna. Eliza Reid, fyrrverandi forsetafrú og rithöfundur, á fjölskyldu og vini í Kanada en hún fylgist með vaxandi spennu ríkjanna á milli héðan frá Íslandi.„Ég myndi segja að ég væri bjartsýn manneskja þrátt fyrir allt sem er að gerast. Jákvætt orð sem kemur fyrst upp í hugann við þessar aðstæður er stolt. Auðvitað er mikil óvissa fram undan en ég sem Kanadamaður er bara mjög stolt af því hvernig fólkið í landinu og ríkisstjórnin hafa sameinast andspænis þessari ógn. Við erum að takast á við þetta saman. Eins og við