Áhættumat íslenska ríkisins endurskoðað í ljósi ógna Rússa

Áhættumat íslenska ríkisins verður endurskoðað í ljósi nýrra frétta frá Danmörku um að danski herinn ætli að auka viðbúnað vegna ógna frá Rússum. Þetta segir Jónas Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins.Danir telja aukna hættu á fjölþáttaárásum Rússa á NATO-ríki á næstu mánuðum. Varnarmálaskrifstofa utanríkisráðuneytisins telur ógnina alvarlega og hyggst endurskoða hættumatið.„Við metum ógnina alvarlega. Það hefur verið fylgst mjög vel með þessu,“ segir Jónas.Jónas segir það verða gert í þéttu samstarfi við bandalagsríki sem hafi fjallað um þessa ógn, þar á meðal dönsk, þýsk og pólsk yfirvöld, sem hafi upplifað atvik tengd þessu.Ein árás er þegar til rannsóknar í Danmörku, þegar neyðarblysi var skotið frá rússneskri freigátu að eftirlitsflugvél frá danska h
Áhættumat íslenska ríkisins endurskoðað í ljósi ógna Rússa

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd