Dómsmálaráðherra kynnti í dag áform um að fækka lögregluembættum úr níu í þrjú. Hún stefnir á að leggja fram frumvarp þess efnis á Alþingi í nóvember, en drög að frumvarpinu verða kynnt í samráðsgátt stjórnvalda í október.Í dag eru embættin níu og skiptast í höfuðborgarsvæðið, Suðurnes, Suðurland, Vestmannaeyjar, Austurland, Norðurland eystra og Norðurland vestra, Vestfirði og Vesturland. Þegar embættunum verður fækkað verða höfuðborgarsvæðið og Suðurnes að einu embætti, Austurland, Suðurland og Vestmannaeyjar sameinast í eitt stórt embætti og Norðurland, Vesturland og Vestfirðir mynda það þriðja.Lögreglustöðvum verður ekki fækkað en aðalstöðvar verða einungis þrjár í stað níu. Fjöldi lögreglumanna helst sá sami en lögreglustjórum verður fækkað í þrjá. MARKMIÐIÐ AÐ STYRKJA LÖGREGLUNA Þo