„Þarna sést samt þetta eðli Flokks fólksins“

Það er ekki óvanalegt að það gangi á ýmsu bak við tjöldin í stjórnmálum. Eðli Flokks fólksins kom hins vegar skýrt fram í skilaboðum sem Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir, aðstoðarmaður Guðmundar Inga Kristinssonar, fyrrverandi ráðherra og þingmanns Flokks fólksins, sendi honum, að mati prófessors í stjórnmálafræði.Fréttastofa hefur skilaboðin undir höndum. Í þeim þrýstir Guðbjörg á Guðmund Inga að tilkynna um afsögn sína sem ráðherra þegar hann er nýútskrifaður af sjúkrahúsi. Þá hafði þegar verið ákveðið að Guðmundur skyldi láta af embætti, þvert á hans vilja.Guðbjörg segir Guðmundi Inga að tveir kostir séu í stöðunni fyrir hann að tilkynna um afsögn eftir veikindaleyfi – eða stríð. „ÞESSI SKILABOÐ VIRÐAST VERA SVOLÍTIÐ KALDRANALEG“ „Þetta er nú allt svolítið svona hráslagalegt þarna hjá Fl
„Þarna sést samt þetta eðli Flokks fólksins“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd