„Hinn fullkomni stormur“

„Alþjóðapólitísk áhætta er mikil og horfur í efnahagsmálum á heimsvísu eru óvissar,“ segir í Fjármálastöðugleika, nýjasta riti Seðlabanka Íslands. Þegar horft er í gegnum stofnanamálið gæti Seðlabankinn allt eins verið að segja okkur að það séu krísur víða og það þurfi rosalega lítið til að heimshagkerfið fari á hliðina.Þess vegna lá beint við að spyrja Tómas Brynjólfsson, varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika, hvort bankinn væri í raun að vara við mögulegri eða yfirvofandi heimskreppu. „Við göngum ekki svo langt en það eru að verða einhverjar grundvallarbreytingar á vöxtum sem geta haft áhrif á til dæmis þessa miklu uppbyggingu gervigreindar í Bandaríkjunum. Ef væntingar um það breytast getur það haft áhrif á fjármálamarkaði.“ Þetta svar krefst nánari túlkunar.Þarna vísar Tómas í þróun
„Hinn fullkomni stormur“

Skráðu þig inn eða stofnaðu aðgang til að skrifa ummæli

Skoða nánar

Um Blaðbera·Vefþjónusta·Persónuvernd