Uppbygging 260 íbúða fyrir tímabundna búsetu á Völlunum sem Hafnarfjarðarbær tilkynnti hefur fallið í grýttan jarðveg hjá íbúum í hverfinu. Hrundið hefur verið af stað undirskriftalista gegn verkefninu og segir fólk að verið sé að gjaldfella hús íbúanna í hverfinu.